23febrúar
26janúar
hvađa hvađ!!!???
mig dreymdi í nótt að það væri maður að elta mig með rakvélarblað og hann ætlaði að drepa mig. allt í einu var ég með 2 mönnum inn á löggustöð og ég var ÓLÉTT í þokkabót og átti að eiga krakkið 22.MAÍ.samkvæmt draumur.is merkir að vera ólétt:
Að dreyma að maður sé óléttur er góðs viti. Þetta táknar upphaf á einhverju nýju og spennandi í lífi þínu, jákvæðar breytingar eru í nánd.
hvort þýðir þetta þá að þetta jákvæða góða byrji 22. maí eða endar það þá? hvort á ég að byrja að hlakka til eða hvíða fyrir 22. maí? hvað haldið þið?
23janúar
njjaaaaaaaaaa!!!
ég átti ekki góðan dag í dag. fór lasin í skólann til að kynna lásí verkefni og kom heim með bullandi hita og læti! ákvað að leggja mig bara. vakna svo við að ég er með bjalaðan hausverk og ekki að ástæðulausu... strákurinn beint fyrir ofan mig var að blasta korn. ég hef ekkert á móti korn en þegar maður er veikur heima með hausverk í þokkabót og mér leið eins og korn væru inn í herberginu mínu!!! gaurinn var ekkert að lækka... sona hélt þetta áfram og áfram og áfram. að lokum missti ég mig! fór mygluð og lasin og í semí náttfötum og þrammaði upp tröppurnar og dinglaði hjá honum. þegar hann svaraði eipaði ég á drenginn!!! þokkalega gave him pís of my mind!!! hann var voða skrítinn á svipinn, baðst afsökunnar og fór og lækkaði... !!! urrr....02nóvember
bara kominn nóvember :)
úff daa... ég lofaði að verða duglegri að blogga smá þannig að ég ætla að blogga smá:októberfest var nottla bara æði, ekki hægt að toppa þessa bjór-helgi :) frábær stemmari í tjaldinu og sungið og trallað eins og maður fengi borgað fyrir það.
síðustu helgi var svo halloween-búningaparty hjá hlíf og heiðu (mynirnar frá því partýi eru búnar að fjúka til á bæði facebook og myspace). ekkert smá gaman :) ég ákvað að vera rosa sniðug og föndra mér búning þar sem ég er einstaklega fátækur námsmaður/kona... ég ákvað að nýta mér það að ég á alveg óþarflega hjúkkulegan kjó og bjó mér til nokkur sjúkramerki (rauður kross) og sona höfuð-dót og maggan stal risa sprautu af spítalanum sínum og wholla! fínasti hjúkkubúningur komin :) ég fór svo með vallý og tobbu í partýið. þar voru mörgæsir, kúrekar, jólatré, gothara ballerínur, axarmorðingi, fallinn enginn, lík og alls konar :) og nokkrir sem ekki höfðu neitt hugmyndaflug og mættu ekki í neinum búning!!! beilerar!!! síðan fórum ég, vallý, tobba, jólatréð og e-r dúddi á hressó. komusmt meira að segja fremst í röðina út á lúkkið ;) svaka gaman og svaka stuð og svo mætti mín hress og kát í vinnuna kl 11 morguninn eftir... ekki eins gaman!
svo er planið að kaupa sér kort í þessari háskólarækt og skafa kannski sona 5 kg af sér fyrir jólin amk og halda svo bara áfram :)
19október
einum of fyndiđ :)
ef að þetta kemur fólki ekki í gott skap fyrir helgina þá get ég ekki hjálpað ykkkur:http://www.b2.is/?sida=tengill&id=258300
11október
réttir, skólinn, afmćliđ, helgin, framundan...
jæja jæja.. ég er víst búin að fá að heyra það að ég sé lélegur bloggari. sem er alveg rétt svo sem ;) en nú skal verða breyting á... eða amk ég skal reyna að betrum bæta mig og bloggið mitt.réttirnar:
ég og ragga fórum heim á fös dag eftir vinnu hjá okkur. svaka tilhlökkun í gangi eins og alltaf fyrir þessa helgi en samt smá skrítinn fílingur líka. við vorum bara 2 að fara að mæta heim í réttir, ekkert smá skrítið... einu sinni vorum við 30 manns heima um þessa helgi, þess má til gamans geta að ragga svaf þá inn í forstofu ;) skátar eru víst ávallt viðbúnir. við pössuðum okkur voða mikið að blanda fyrir okkur þegar mamma sá ekki til, soldill 16 ára stemmari þar á ferð. hí hí hí!!! við hjálpuðum pa að drösla bikkjunum, amk tvemur, framettir. svo vöknuðum við fyrir allar aldir daginn eftir og pabbi keyrði okkur og við tókum flóka með okkur. við vorum bara mjög tímanlega í því og það var minnsta málið að ná perlu og galsi því þau vissu að flóki var með okkur. auðvelt að plata sona kjánahross ;) merin var alveg í essinu sínu til að byrja með; hoppaði um og reyndi að bíta mig nota bene meðan ég var á baki og tók alltaf tryllingskast þegar hún heyrði í fjórhjólunum. ég sver það, ég man ekki eftir því að hafa verið sona hrædd á hestbaki áður, hún ætlaði svo að henda mér af! en svo eftir 2-3 tíma áttaði hún sig á því að þetta var ekki að virka og hún fór að haga sér betur... sem betur fer, taugarnar mínar þoldu ekki meira. ragga greyið skröltist um á flóka fyrri part dags og skipti svo yfir á galsa. sökum þess að ég var á perlu átti ég soldið erfitt með að drekka e-ð af viti, ragga minnti mig ósjaldan á það að ég væri ekki búin að sulla nóg ;) eftir pásuna í tungu tók ég við mér, enda merin farin að haga sér skár, og gat farið að djúsa með röggu :) við tókum sona 200 myndir held ég, án djóks! ég hitti gamla bekkjarfélaga í réttunum og ma vallý með bumbuna sína. alveg ótrúleg að mæta í réttir og átti að eiga eftir ca 10 daga! um kvöldið fórum ég og ragga í drykkjuleik með pa, spiluðum svínaspilið. síðan var bara dansað og dansað og dansað á ballinu. svaka stuð :) gott hins vegar að koma heim og fara að lúlla seint og um síðir. góð helgi :)
þveráin smöluð:
svaka puð og púl eins og vanalega. en manni leið vel að vera sona duglegur :) lærdómur þessarar helgi var að hann flóki minn er orðinn of gamall (og feiiiitur) fyrir þetta tilstand. ég hefði gert meira gagn ef ég hefði smalað á hamstri!!! eða eins og gugga syss orðaði það "það á að þurrka hann og selja e-m japana" soldið harch orðað hjá henni en ég skyldi hvað hún var að fara ;)
skólinn:
skólinn er alveg komið á blússandi ferð. ég hef örugglega aldrei verið eins dugleg á neinni önn eins og núna, eins fokkin gott að það skili sér í einkunnunum!!! var bæ þe vei í prófi áðan í sjónrænni mannfræði og gékk bara nokkuð vel takk fyrir takk.
afmælið mitt 5.okt:
ég eeeelska að eiga amli, það er bara svooo gaman! ég var eins og þeytispjald allan daginn og svo um kvöldið var partý! einstaklega vel heppnað partý meira að segja ;) við fórum í drykkjuleik og svo stálu vallý og tobba 2 strákum úr öðru partýi. annar þeirra kunni á gítar og haldið þið ekki að hún berta eigi gítar! :) ef ég fæ ekki hávaða kvörtun fyrir þetta party þá fæ ég aldrei þannig! svo var haldið í bæjinn, nánar tiltekið á hressó... hvað annað? þar fórum við á kostum í ljótu-dansakeppni, mæli eindregið með þannig keppni. bara gaman, ég veit ekki hvað fólkið hefur haldið sem sá okkur dansa. eftir soldið mikla og stífa drykkju tók endirinn óvænta stefnu... tralla lalla laaaaaa ;)
núna:
núna er allt að gerast ef maður er í háskólanum, nebbla uppáhalds þýska hátíðin mín... októberfest!!! ég tók þátt í þýsku bingói í gær. ég er svo heppin í ástum að ég vann ekki neitt ;) og svo er meira í gangi í kvöld og aðalkvöldið á fös... sjæse hvað mér hlakkar til :)
framundan:
þetta er nú búinn að vera brjálaður djamm-mánuður hjá mér og hann virðist engann endi ætla að taka: nætu helgi er partý í "karlmenn eru fávitar"-klúbbnum (alls ekki bitrar ungar konur þar á ferð), helgina eftir það er vísó með 50% af margrétunum mínum aka ms syss og margréti v og afmæli hjá elsu og svo halloween-búningaparty (ég er búin að ákveða hvað ég ætla að vera). það verður bara fínt að fá nóvember, ég ætla heim eina helgi og svo bara örugglega ritgerðarmania í gangi þannig að maður hefur ekki tíma fyrir djamm og þannig bull ;)
... jæja, þetta er ágætis ritgerð hjá mér. vonandi nennir e-r að lesa þetta :) ps fuuuullt af myndum á myndasíðunni minni...
02september
langt síđan síđast...
það er sko ýmislegt búið að gerast hjá mér síðan síðast...- heimalingurinn minn er fluttur til NY.
- versló kom og fór án þess að ég fengi neitt að njóta hennar. sillí billí ég ákvað að vinna næturvaktir alla helgina, geri það sko ekki aftur skal ég segja ykkur! þetta var átakanlega lítilfjörleg helgi.
- ég splæsti á mig glænýju tv! rosa flottur gripur! ég hlakkaði til þess að getað loksins notið dvd spilarans míns... sem ég gerði í 2-3 vikur. blessuð sé minning hans. nota bene: mig langar í nýjan dvd spilara í jólagjöf!!!
- ég kíkti heim á ma & pa. járnaði með pa en það gékk ekki átakalaust fyrir sig, merkilegt hvað klárarnig heima reyna alltaf eftir fremsta megni að haga sér illa þegar þeir eru járnaðir. líka klárar sem eru orðnir of gamlir til að geta hagað sér illa. greyið gamli maðurinn fékk smá sár eftir að galsi prjónaði á hann :/ daginn eftir smöluðum ég og pa heimalandið.
- ég er orðin member á facebook þökk sé þrýstingi frá guggu syss ;) hehehehe
- berta mín er komin aftur!!! jeiii!!!
- sumarvinnan er búin og skólinn byrjar á morgun :)
- síðasta vika er búin að vera hell!!! til að gera langa sögu stutta var ég að komast að því í gær að ég er með húðsjúkdóm ;( fer á morgun til sérfræðings sem lætur mig loksins loksins á rétt lyf. ég verð vonandi orðin sæt aftur fyrir næstu helgi en þá er planið að fara heim í réttir :)
læt þetta duga í bili...
chao ;)
02ágúst
sagan af ţví ţegar sigurrós og margrét brutust inn í adam & evu á hverfisgötu/vitastíg
í gær fót ég í heimsókn til ms syss því hún var nýkomin frá útlöndum og þal með dót handa litlu syss ;) þegar ég var búin að kyssa hana fyrir allt nýja dótið ákváðum við að trítla niðrá stælinn. við byrjuðum á því að labba laugarann en þegar litla dýrið rak augun í adam & evu ákvað hún að þær skyldu nú kíkja aðeins þangað inn og skoða. klukkan var orðin aðeins meira en 18 en þar sem það var ljós inní búðinni ákváðum við bara að labba inn. fyrst heyrðist sona mjög hátt "pííííip", svo eftir smástund breyttist hljóðið í "úíúíúíúí".PANIKK!!! svo sáum við okkur í myndavélunum og panikkuðum enn meira. helv búðin átti að vera læst en sumir starfsmenn þar kunna það greinilega ekki!!! við forðuðum okkur út úr búðinni og margrét ákvað að ég skyldi hringja á lögguna og tilkynna málið. lögginn sagði mér að bíða eftir að e-r frá securitas myndi mæta á staðinn... sem við gerðum. eftir smástund komu 3 túristastelpur sem ætluðu líka inn í búðina en við stoppuðum þær af... síðan kom gaurinn frá securitas sem tók niður símanr og nafnið mitt.
sjæse... þetta fékk mann svo sannarlega til að verða smá skelkaðann og ég held að ég þori ekki inn í þessa búð á næstunni, þar sem ég sást á myndavélunum.
31júlí
aha!
þarna kom skýringin á ölu saman! ... þetta er ekki mér að kenna, þetta eru próteinin í mér ;)http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1282661
27júlí
vinna vinna eđa vinna?
maður veit að það líður að versló þegar fólk er farið að biðja um nr hjá þeim sem leigja út útikamra ;)annars er ekkert að frétta af mér... ég er að spá í að flytja lögheimilið mitt að stórhöfða 33.
framundan er félagslega fatlaðasta verslunarmanna helgi sem ég gæti hugsað mér, næturvaktir á fim-fös-lau-sun og svo kvöldvakt á mán. gaman að vera til! ;) en ég er samt að fara í stelpupartý núna um helgina til að bæta upp versló... víííí!!!!
