04mars
mér hefur tekist hið ómögulega... að vera heima hjá mér heila helgi! ég kíkti ekkert út um helgina :) ég var bara voða þæg á fös kvöldið en fékk engann svefnfrið fyrir því fólki sem hélt að ég væri á djamminu og ákvað að senda mér sms eða hringja í mig. á meðan ég fékk ekki svefnfrið pimpaði ég my-spaceið mitt soldið ;) ég er allt of forvitin til að setja símann minn á silent á nóttinni, þannig að ég sofnaði um 4 þegar síðasta símtali var lokið ;) steini reyndi að freysta mín í gær með því að bjóða mér í party, en ég endaði á því að fara yfir til önnu kötu og horfa á (heimskulega) stelpumynd með henni og guðrúnu... og borða á mig 5 kg af nammi. það er nú alveg líklegt að ef ég hefði farið út hefði ég drukkið á mig 5 kg af, en ég hefði þá amk reynt að dansa þau af mér. sem sagt ég þyngdist á því að fara ekki á djammið!!! ekki góð framför!!!
ég er með eitt lag á heilanum sem er að gera mig geðveika. grace kelly með mika! ég hlusta á það aftur og aftur... ég er að vona að ég fái bara leið á því eftir að hlusta á það á repeat ca 500x. ég er að raula og gaula það öllum stundum!!!
nýja stelpan í íbúðinni heitir berta og er voða fín. passar alveg við lýsinguna frá masha "bohemian type"... hehe. okkur semur enn sem komið er vel :) eina sem ég hef áhyggjar af er hljómborðið sem hún er með inni hjá sér...
01mars
ég ákvað að blogga bara smá þar sem ég þjáist af smá ritstíflu núna, er að gera greinargerð um morgunverðafundinn sem ég fór á í síðustu viku. gékk nokkuð vel þangað til að ég lenti í smá msn-vændi ;) hí hí hí...
masha og steve voru að flytja út í kvöld og nú er allt ótrúlega hreint og tómlegt verð ég að segja. steve kom mér algjörlega á óvart með því að skúra bara allt pleisið í dag, við erum að tala um sama manninn sem horfði með hvolpasvip á mig og sagðist ekki geta skúrað því hann kynni það ekki !!! svo tók ég sjálf smá tiltektar kast þannig að það glansar allt... ilmar allt af hreinlæti eins og hann gunni í bensíninu sagði alltaf :) nýja rauðhærða stelpan kemur á morgun, mér hlakkar til. ég vona bara að hún reykji ekki og nenni að þrífa aðeins meira en þau hin ;)
ég er búin að vera að hugsa smá undanfarna daga... ég fékk smá ógeð af sjálfri mér síðustu helgi. það átti allt að vera svooo gaman en svo drakk ég bara yfir mig, make-uppið fór til fjandans, stakk stelpurnar af og var svo allt í einu komin á barinn (Barinn sko ekki bara barinn ;) svo verð ég fara að herða mig í náminu, ég er efir á að lesa í öllum fögum. og á næstunni eru endalaust mikið að verkefnum og ritgerðum!!! held að ég haldi mig innan dyra þessa helgi.
23febrúar
góðan dag gott fólk! þessi skemmtilegi titill kemur til af því að ég er í heimaprófi í kenningum í kynjafræði og þarf ma að skilgreina þessi orð. þeir sem eru engu nær mæli ég með því að þið lesið smá freud í hausinn á ykkur :) ég var vakin kl 8 í morgun við að börnin á leikskólanum við hliðiná voru að singja hástöfum línu langsokk og loksins þegar þau hættu byrjuðu kallarnir á verkstæðinu fyrir neðan að smíða með þvílíkum látum!!! ég var ekki sátt, trúið mér!!! ég ætla að vera á náttfötunum í allan dag og gera ekki neitt nema heimaprófast... fæ samt kannski smá heimsókn frá önnu maríu frænku. á meðan ég svitna á heilanum eru bæði mannfræðifólkið og stjórnmálafræðifólkið að fara í vísó (samt ekki saman)... vonandi drekka þau bara yfir sig og skemmta sér illa!!!
á þri daginn fórum ég og guðrún ásta saman í bíó á last king of scotland, myndina um idi amin. við fengum báðar miðana út á kúrsa sem við erum í ;) þetta er snargeðveik mynd, ég hélt amk 3x fyrir augun! það er eitt viðbjóðslegt atriði næstum alveg í lokin... gaman samt að fara frítt í bíó :)
á mið dagsmorgun fór ég á morgunverðarfund á grand hótel um kynbundið ofbeldi. ég var búin að skrifa feita færslu um hann en hún þurrkaðist öll út! uurgggg.....! mjög fróðlegt allt saman sem þar var rætt. því miður kom ekkert mér á óvart í erindunum, þeas ég hafði heyrt þetta allt áður. svo voru fulltrúar frá stjórnmálaflokkunum þarna og lofuðu allir bótum og betrun í þessum málum... sjáum nú til með það hvort þeir standa svo við orð sín!
í gærkvöldi fórum ég og ragga litla á ógó skemmtilegt námskeið í sjálfsvörn. þetta var bara 3 tíma námskeið þannig að við erum ekkert komnar með svarta beltið en ættum að geta kung fúað þann sem reynir að ráðast á okkur. mæli endilega með þessu námskeiði, ekkert smá skemmtilegt og skemmtilegur (og sætur) gaurinn sem var með það ;)
dagskrá helgarinnar: heimapróf í dag, hittast kannski með fleirum upp á hlöðu á morgun og læra undir aðferðafræðipróf, körfuboltapartý um kvöldið, hræra í eina ritgerð á sun dag og þarf helst að gera 1-2 verkfni líka!!! úff... allt of mikið að gera!!!
masha og steve eru að flytja um mán mótin og ég fæ í staðinn rauðhærða ísl stelpu. spurning um að venja sig strax af rauðhærðu-bröndurunum ;) masha er með þessari stelpu í tíma og segir hana vera mjög cool og bohemian type (enda rauðhærð). ég vona bara að hún kunni að læsa útidyrahurðinni og vaska upp eftir sig!!! (sumir á þessi heimili kunna það nebbla ekki).
en nóg komið af bulli, þarf að massa þetta próf :) (nota bene nýji liturinn, er hann skárri renata?)